Keep on rocking in the free world
14.03.2007 11:56:15 / sunna

búin að færa mig

Ég er búin að færa mig yfir á sunsun.bloggar.is !!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.01.2007 16:27:16 / sunna

Wellwell

Jæja. Er ekki planið að blogga svona einu sinni í mánuði..hehe. Maður er ekki nógu duglegur við þetta. En það sem hefur gerst síðan ég bloggaði seinast er t.d. jól, áramót, 20 ára afmæli mitt, og Luxemborg.

Jólin mín voru æði..lá bara í leti og borðaði og glápti á sjónvarp. Fékk margt fallegt í jólagjöf og m.a. það fallegasta sem ég hef fengið á ævi minni. Það var frá henni Möggu minni og hún var búin að gera myndaalbúm sem samanstóð af myndum af mér, Ellu og Möggu. Myndirnar spönnuðu tímann síðan við kynntumst fyrst út í Danmörku og fram að útskrift....allveg æðislegt :) ---------Man ekki hvað ég gerði á milli jóla á nýárs, var ekki að vinna því vinnan mín er lokuð þá...æði gæði :) ----------Síðan átti ég NÁTTÚRULEGA afmæli á gamlársdag og varð 20 ára...JE BEIBÍ!!!Steini varð 21 árs á gamlárs..gamligamligamli. HAHAHAHA Gamlárskvöld var ömurlegt :) Fórum í ekki mjög skemmtilegt partý....----------4. janúar fór ég í landsliðsferð til Luxemborg og kepptum við þrjá leiki við Danmörk, Portúgal og Lux. Við töpuðum öllum leikjunum og ég fór ekki inn á í eina sekúndu. Ég var í herbergi með Maríu og við vorum ekki sáttar vegna þess að fyrir ferðina hafði þjálfarinn okkar hann Marek að þessi ferð væri ekki fyrir okkur heldur væri hún fyrir hann, svo hann gæti séð hvern og einn leikmann inn á vellinum í a.m.k. 2 hrinur. Hann stóð semsagt ekki við það og við vorum 4 sem fórum lítið sem ekkert inn á. En ferðin var skemmtileg engu að síður...maður fer kannski að drita inn einhverjum myndum úr henni.----------Ég er orðin voða tæknivædd og er komin með myspace...maður er annars víst ekki maður með mönnum. Það er semsagt myspace.com/sunnann    er ekki merkilegt ..en ég er að reyna að gera þetta flottara.

Hef ekkert meira að segja en að lag dagsins er : easy lover - Phil Collins + Phil Bailey...kemst alltaf í gott skap við þetta :) Hilsen


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.12.2006 16:46:11 / sunna

Sísababba

Djöfull er langt síðan ég bloggaði...Ómægad

En til að vera virkur þjóðfélagsþegn ætla ég að leggja hér orð í belg varðandi vegakerfið á Íslandi og þessa stanslausu umræðu um hvað það sé lélegt og jarajara.Ég hlusta stundum á bylgjuna á leiðinni heim úr vinnunni með mömmu og þá er alltaf eitthvað fólk að hringja inn og væla útaf lélegu vegakerfi og blabla. Það sem ég hef um málið að segja er það að auðvitað er það rétt að út á landi eru vegir oft til háborinnar skammar...bæði þröngir og holóttir. Ég ætti að vita það, þar sem ég bjó út í afdölum á vestfjörðum í sumar.En það sem mér finnst fáránlegt að það er alltaf verið að tala um hvað vegir hérna á höfuðborgarsvæðinu séu lélegir og að þaðéigi að fara að tvöfalda suðurlandsveg og eitthvað.Mín reynsla er sú að með tvöfuldun vega þá eykst hraðinn svo um munar...OG ER ÞAÐ ÞAÐ SEM VIÐ ERUM AÐ LEITA AÐ::::NEI!!! Ég held að þetta sé ekki það rétta í stöðunni. Það þarf að brýna fyrir fólki að keyra varlega og ekki láta eins og fíbbl. Síðan heyrði ég í einum kalli sem var að kvarta yfir því að það væri svo hált á einhverjum stað og þar hefðu tveir bílar lennt í árekstri af því að það var ekki búið að sanda. FOKK THAT!!! Það þarf að brýna fyrir fólki að keyra ekki eins og brjálæðingar á 70 eða 80 km/klst  á fljúgandi hálku. OOOOHHH!!!! Fólk er svo HEIMSKT!! Það keyrir eins og brjálæðingar og er svo að furða sig á því að það séu 30 manns látnir á árinu. ÞIÐ ÆTTUÐ AÐ SKAMMAST YKKAR!!!!

* En yfir í bjartari umræðu. Perla bandið hans Steina vann semsagt Battle of the bands á íslandi þar sem 16 hljómsveitir tóku þátt og unnu sér með því þátttökurétt á Global Battle of the bands sem var haldið í London í fyrradag. Þar komu 25 hljómsveitir fram frá 25 löndum. Þeim gekk ágætlega að mér skilst þó svo að þeir hafi ekki komist á pall. Bandið sem vann var bandarískt rappband sem var víst mjög flott. Eitt Perlulag er komið í spilun á XFM og heitir blákalt andartak og er að gera góða hluti. Er komið í 18.sæti x dominos listans..sagði mér mikil kjarnakona.

* Af mér er reyndar lítið að frétta. Bara æfingar og vinna. Var reyndar á landsliðsæfingum um seinustu helgi..sem var frekar þungt en samt gaman. Komst reyndar ekki í liðið ...en það verður að hafa það. Var samt beðin um að koma líka núna um helgina til að það sé meiri mannskapur. Planið er síðan bara að fara að hitta Atla og tala um fyrirhugaða London reisu þar sem við ætlum að hefja nám í hljóðblöndun í haust... ef við komumst inn. HEHEHE.

*27. nóvember var merkisdagur að því leyti að meistarinn Hendrix átti afmæli þá og við Steini vorum búin að vera saman í hálft ár.....sjitt hvað þetta er fljótt að líða.

Fyrst þegar ég byrjaði að hlusta á Hendrix þá hlustaði ég bara á þessi frægustu..og fannst hin bara ekkert mjög skemmtileg. En síðustu mánuði hef ég verið að hlusta mikið á þann mæta meistara og ég baar fokking elska nánast allt sem hann gerir ..

Lag dagsins: Castles made of sand - Hendrix

www.myspace.com/musicperla


» 7 hafa sagt sína skoðun

16.11.2006 16:15:58 / sunna

...............

Sjæse. Orðið ansi langt síðan ég bloggaði. Ýmislegt búið að gerast. Var eina helgi á Akureyri að keppa tvo leiki og við unnum þá báða og urðum svo veðurteptar...teftar...veit ekki. Áttum flug klukkan 13 á sunnudaginn og komumst ekki fyrr en klukkan 2100. En það var bara fínt því þá gátum við hvílt okkur eftir djammið fyrr um kvöldið. Þar sem pabbi býr á Akureyri var  ég náttúrulega hjá honum. Við leigðum okkur Derailed sem er snilldarmynd með Jenifer Aniston og Clive Owen ..held ég að hann heiti. Mæli eindregið með henni...var tussuflott.

* Magga búin að eignast systur svo til lukku með það kella mín :*.

     Fór tvisvar í bíó um seinustu helgi...fór með Steina á Mýrina...og var hún mjög góð. Síðan fór ég með Ellu á Borat..og hún var algjör snilld...ahahahaha!!!! Annars er bara búið að vera að vinna og æfa, lítið annað. Fór reyndar í gær á Dillon því Perla var að spila þar og voru mjög góðir. En síðan var þarna önnur hljómsveit sem spilaði á undan þeim sem var drullu flott og ógeðslega þétt. Svona stoner rokk hljómsveit sem ég náttlega elska....og heitir hún Cliff Claven held ég. Minnti mikið á Brain police og Queen of the stone age...og það eru náttúrulega bönd sem ég fýla í tætlur...þ.e.a.s. gamla draslið með brain police...hef ekki hlustað mikið á þetta nýja og langar heldur ekkert mikið til þess, þar sem maður hefur ekki heyrt neitt mikið gott um það.

* Spurning. Hvað finnst ykkur um þetta sem gaurinn í frjálslyndaflokknum sagði í sambandi við innflytjendur. Sko...ég gæti ekki verið minni rasisti en ég er en samt er ég alveg sammála honum í mörgu... og mér finnst fólk hafa litið þetta kolröngum augum og gera úlfalda úr mýflugu. Auðvitað þarf eitthvað að takmarka þennan stöðuga straum innflytjenda inn í landið...og þó ð maður sé á þeirri skoðun þá er það náttúrulega bara þvættingur að vera að stimpla greyið manninn sem einhvern rasista. Ég vil endilega fá komment á þetta...ef einhver er að lesa þessa síðu.

Lag dagsins : Titillagið á frumburði hljómsveitarinnar Shadow parade...hef ekki náð nafninu á laginu. Verið þið blessuð.  


» 8 hafa sagt sína skoðun

26.10.2006 18:27:20 / sunna

Gaman aððessu

Allt gott að frétta hérna megin. Spilaði sjónvarpsleik á laugardaginn sem gekk alveg glimmerandi. Fór svo í afmæli til Söndru á Glaumbar og hitti auðvitað Sigurjón þar. Ýkt gaman að hitta hann, ekkert smá langt síðan. Hitti síðan Steinþórá Hverfisbarnum og síðan fórum við bara heim. En ástæðan fyrir þessu bloggi er sko sú að í gærkvöldi fórum við Ella að horfa á strákana í Perlu spila sína fyrstu tónleika, og voru þeir haldnir á Dillon. Þeir spiluðu 4 frumsamin lög (eiga held ég ekki fleiri) og svo eitt Deep purple lag...when a blind man cries. Þeir voru snargeðveikir sko. Þetta var ótrúlega flott hjá þeim. Það gekk allt uppfannst mér, en er auðvitað bara áhorfandi..veitekki meir.Fyrir utan fyrsta lagið sem þeir tóku sem erenginn söngur í. Þeir byrjuðu bara eitthvað í ruglinu og stoppuðu svo bara og eitthvað ,,HEHE...lélegt sound hérna...byrjum upp á nýtt". Algjör snilld. Mér fannst þeir æðislegir...og JÚ ég get víst verið hlutlaus, þó svo að þetta sé hljómsveitin hans Steina.Það eru margir búnir að segja við mig...þú ert náttúrulega hlutdræg....BLABLABLA. Kjaftæði ég veit hvað mér finnst flott og hvað ekki, og mér fannst þetta bara flott. Þeir eru að spilanæst í FÁ á þriðjudaginn og ég hvet allatil að mæta svo þið vitið um hvað ég er að tala:)

Stal þessu á einhverri síð..grenjaði úr hlátri....enjoy!!!!

Kúkar í ýmsum myndum

Draugadrjóli: Þú finnur hann koma út en það er enginn kúkur í klóinu þegar þú kíkir

Hreinn skítur: Sá sem þú skítur og sérð í skálinni en það er ekkert á skeinipappírnum

Eltikúkur: þegar þú ert búin að kúka og búin að girða hálfa leið upp um þig og fattar að þú þarft að kúka meira

Dauðadrumbur: Svo ógeðslega stór að þú þorir ekki að sturta án þess að búta hann fyrst niður með blýanti

Loftpressukúkur: kemur með svo miklum látum að allir í kallfæri flissa

Þynnkuskita: kemur eftir fyllerí. Helstu einkenni hans eru bremusför í skálinni

Maískúkur: skýrir sig sjálfur

Ohh-ég -vildi-að-ég-gæti-kúkað kúkur: þú þarft að kúka en situr bara á dollunni og fretar

Mænustunguskítur: þessi er svo brjálæðislega sársaukafullur að þú ert viss um að hann er á leiðinni út þversum

Rasskinnableytuþrumari: fer út á svo miklum hraða að afturendinn á þér rennbleytis af klósettvanti

Háklassakúkur: kúkur sem lyktar ekki

Óvæmtur kúkur: þú ert ekki einu sinni á klóinu því þú hélst að þú þyrftir bara að pruma en... úps sparð

Slórskítur: kúkurinn losnar ekki frá rassgatinu á þér, þó þú sért búin að kúka, fyrr en þú hristir þig vel

Atómsperngja: þig svíður undan þessum á leiðinni út og svíður í marga klukkutíma á eftir

Skopparakúkur: Hörð spörð sem fara eins og skopparaboltar um alla skálina (kostur: þarf ekki að skeina)

Long John Silver: svo langur að þú þarft að kúka - klippa - kúka - klippa...

HAHAHAHAHAHAHAHhhahhahhahhahhaha!!!

Annars er lítið meira hægt að segja.....nema bara Adios.

Lag dagsins : Perla - Veit ekki hvað lagið heitir en það er eitthvað með hafið þennan dag í textanum...suddalega flott,og Elli söngvari er algjör hetja í því.


» 9 hafa sagt sína skoðun

15.10.2006 16:50:38 / sunna

Flókalundur 2006

Loksins eru myndirnar frá Flókalundi komnar inn. Þetta er búið að taka svona ca. 3 fokking tíma helvítis drasl. Ef einhver hefur áhuga þá er þetta hérna vinstra megin að neðanverðu undir ,,myndir úr daglegu lífi. Njótið.

» 8 hafa sagt sína skoðun

30.09.2006 17:15:12 / sunna

Tell me lies, tell me sweet little lies

Jæja...ýmislegt sem ég þarf að segja ykkur í dag.

* Ætla að byrja á Bó Hall tónleikunum. Ég er eins ogþið vitið fáránlega tilfinningarík þegar kemurað góðri tónlist. Ég hef aldrei fýlað Björgvinn neitt þannig lagað en varð að fara fyrst mér var boðið og vissi sossum að þetta yrði góður skítur fyrst sinfonían yrði þarna. En ég skal sko segja ykkur það að ég hef aldrei upplifað annan eins unað. Það var sko gæsahúð og tár í næstum því hverju lagi. Þetta var allt svo frábært ...og síðan komu gestasöngvarar...Eyvi, Krummi, Svala, Sigga og Stebbi Hilmars. Lögin sem hann tók með þeim voru fáránlega geggjuð...sérstaklega þó með Svölu og Stebba ...ýkt geðveikt. Og síðan þegar nálgaðist lok tónleikanna þá sagði hann : ,,Tíminn líður svo hratt ognú er komið haust, og þá fer vetrarsólin að skína". Þegar hann sagði þetta þá fór þvílíkur hrollur um mig og þegar ég rifja þetta upp þá fæ ég sko gæsahúð og tár í augun. Ég vissi þá strax hvaða lag hann ætlaði að taka ..og síðan byrjaði hann að syngja lagið Vetrarsól eftir Gunna Þórðar...ogég er ekki aðgrínast..ég held ég hafi aldrei upplifað annað eins...þetta var svo flott hjá honum ogþetta lag er náttúrulega algjör klassi ...höfumstundum sungið það í kórnum. Og líka bara allt sjóið í kringum þetta lag var fáránlegt öll ljósin og allt. Ég skal sko segja ykkur það að ég grét bara....er ekki frá ´því að það hafi verið eitthvað  um ekkasog þarna...það er eitthvað að mér, eg meina það. Hvað er að? 

* Fór á æfingu áðan og fór svo í Hagkaup...og sá þá að það var fokking sprungið.Og þar sem ég hef aldrei skipt um dekk áður þá hringdi ég í Steina...en neinei ...riddarinn var sko ekkert að svara símanum sínum. Þá hringdi ég í varariddarana þau Ellu og Ása og þau skiptu um dekkið á no time.Og nú kann ég þetta...þetta virtist ekki vera mikið mál. Takk elskurnar :*

* Fór í Kringluna í gær og keypti mér skó og tvo geisladiska. Keypti mér Best of Fleetwood Mac ..ohhh er svo gömul. Hann er helvíti góður og síðan keypti ég mér líka The Angela Test með Leaves. Líka mjög góður. Sumir myndu segja að það væri asnalegt að kaupa sér geisladiska þegar maður getur bara downloadað þessu öllu. En mér finnst það svo gaman að kaupa diska...ég bara elska það.

En nú ætla ég að fara að taka til í herberginu mínu. Vona að þið eigið góða helgi það sem eftir er af henni...seeya

Lag dagsins : Don´t stop - Fleetwood Mac

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

22.09.2006 16:17:42 / sunna

Helgin er æðisleg

Sit í vinnunni og er að bíða eftir að mamma klári svo ég komist með henni heim á eftir. Dagurinn í dag var fínn.....elska það þegar það er nóg að gera...það er hundleiðinlegt í vinnunni þegar maður hefur ekkert að gera. DRASL! Helgin er að mestu leyti óplönuð...fyrir utan tónleika með Bó Hall og sinfoníunni annað kvöld sem verður án efa magnaður andskoti. Planið er líka að reyna að drullast til að gera eitthvað við herbergið þar sem það er í rugli. Verð að raða því öllu upp á nýtt ...DRASL!!!  En nú er mamma búin og ég er að fara heim. Ætla líka að reyna að henda myndum hingað inn frá Flókalundi ef einhver skildi hafa áhuga....Annars segi ég bara góða helgi

Lag dagsins.......Ekkert ákveðið lag...bara plata....Metallica -  Black album


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.09.2006 23:29:30 / sunna

Strætó

Já strætóar eru ágætis ferðamáti. Þurfti að taka 3 strætóa í dag og þannig verður það alla þriðjudaga hér eftir þar sem ég verð að vinna í Hafnafirði, því Slf er með iðjuþjálfaraútibú þar líka. Var að koma heim fyrst núna, því leið og ég var búin í Hafnafirði fór ég á æfingu vestur í bæ og það er einn strætóinn í viðbót. Ég þurfti sem betur fer ekki að taka strætó til baka þar sem Dóri og Magga komu og sóttu mig og svo fengum við okkur ís með Heimi. Þegar ég labbaði út úr Hagaskóla mætti ég Magga bróður hans Steina sem var að fara á æfingu.Við spjölluðum smá saman og síðan fór hann að tala um að hann þyrfti að fara að bjóða okkur í mat.....hehehe.....mér fannst það frekar fönký. Að fara í mat til fjölskyldu kærasta síns er eitthvað svo ......hvað get ég sagt....ekki ég. Ég þoli ekki hvað ég er orðin mikil kærastastelpa...alveg ferlegt. Ég þoli ekki svona kærustfólk. DRASL. En annars bara gaman að þessu. Já þetta er orðin mjög svo sjálfhverf færsla eins og svo margar áður.

Lag dagsins : Flutter Girl - Chris Cornell.....bara töff.

Góða nótt 


» 9 hafa sagt sína skoðun

11.09.2006 21:11:36 / sunna

11.sept

Sit núna við eldhúsborðið og er að borða kaldar fiskibollur sem eru gómsætar. /ær eru kaldar því ég kem alltaf svo seint heimí mat af æfingu ...semn sökkar. En loksins hef ég eitthvað annað að skrifa um en um sjálfa mig. Það hefur varla farið framhjá neinumað í dag er 11.september....og plís segið mér að ég sé ekki sú eina sem er orðin ansi þreytt á þessari terroristaumræðu. Öllu má nú ofgera. Ég hefði skilið að það mikið væri rætt um þetta mál fyrstu tvöárin eftir þetta ...en nú eru fimmár síðan...ognú er komið nóg. Auðvitað er í lagi að minnast á þetta...en það er algjör óþarfi að þetta sé rætt í öllum helvítis fjölmiðlum í heiminum. Það sem pirrar mig er það að þarna létust einhverjir 3000 vesturlandabúar og það er bara skítur á priki miðað við mörg slys og þjóðarmorð sem allir eru löngu búnir að gleyma...sbr. þjóðarmorð í Úganda....Kosovo málið....darfur málið ....og mörg alls konar mál sem engin talar um lengur. Allir segja..já þetta er af því að þetta er svo nálægt okkur....fokk that!! Er maður ekki alveg 7 eða 8 tíma til USA. Þú kemst til Afríku á tæpum 5 tímum. Þetta sýnir okkur bara það hvað mannslíf eru misjafnlega metin eftir búsetu, kynþætti o.fl.    (þessi bloggfærsla var klárlega í boði Margrétar Haraldsdóttur ;).

Jæja annars er lítið að frétta af mér. Helgin fór bara í ruglið....voða lítið gert. Aðallega hangið upp í rúmi og ekki gert rassgat. Og halló hvað var með þessa fokking rigningu...það er ekkert gaman að gera eitthvað í svoleiðis veðri.

Lag Dagsins : Keane : Crystal Ball (ég hef ekki verið mikið Keane aðdáandi  en þetta lag finnst mér æðislegt. Rosalega falleg melódía.


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.09.2006 17:56:28 / sunna

Hmmm...

Var rétt í þessu að lesa gamlar bloggfærslur hjá mér og mikið djöfull er maður sjálfmiðaður. Skrifar ekki um neitt annað en sjálfan sig...sem er sko hreint ekki merkilegt. Nú ætla ég að reyna að draga úr frásögnum af hversdagslegu amstri mínu og fara að skrifa um eitthvað sem skiptir máli eins og alvöru bloggarar gera. Ég skýt kannski inn einu og einu broti úr mínu lífi.

En málið er að ég hef voða lítið að segja og veit ekkert mjög mikið hvað er að gerast í þjóðfélaginu í dag. Ætla reyna að setja bráðlega inn myndir frá Flókalundi ...leið og ég finn myndavélakortið mitt. Það erkomin helgi sem er æðislegt, mætti vera betra veður og soleis.En ég segi bara hafið það gottum helgina og við hittumst heil .,.,lliihiæ.

Lag dagsins : a-e-o-e-a-o (eða eitthvað svoleiðis) með system of a down 


» 5 hafa sagt sína skoðun

06.09.2006 17:22:37 / sunna

Pylsubrauð eru lostæti

Já ég skal sko segja ykkur það að ég gæti sko lifað á...pylsubrauðum...myndi kannski ekki lifa ýkja lengi en ég elska þau:) Eru svo seig og sæt en samt ekki sæt og bara namminamminamm:) Sit akkúrat núna upp í rúmi í nýja húsinu mínu í nýja herberginu sem er btw allt í drasli..hehe og narta í pylsubrauð. Við Magga kíktum aðeins á Ellu í gær því hún átti afmæli blessunin og hún er komið með svo mikið af upptökudóti að þetta nálgast því að verða hið fínasta stúdíó.Málið  snérist einhvernveginn við. Það var víst ég sem ætlaði mér að læra þetta ...en svona   er þetta.

Ég er semsagt byrjuð að vinna sem aðstoðarmaður iðjuþjálfara upp á SLF og mér lýst bara nokkuð vel á ...sem er eins gott þar sem ég verð að vinna þarna næsta árið.* Keypti mér síma í gær þannig að allir sem lesa þetta blogg mega endilega skilja eftir símanúmerin sín í commentum því ég glataði kortinu mínu:( . Hehe verða trúlega ekki mörg comment þar sem ég byst við að ekkimargir séu að lesa þetta eftir 3. mánaða hlé.

Er að drepast í fokking skrokknum enda byrjuð að æfa aftur. Þetta verður svona fyrstu vikuna....Anna er byrjuð að þjálfa okkur og hún tekur mann sko á beinið: Russian style. Ég er sko með harðsperrur í vöðvum sem að ég vissi ekki að væru til.Drasl. En þetta lagast allt saman þegar maður kemst í eitthvað form.

 

En hef ekkert meira að segja í bili annað enað lag dagsins er píku lag sem heyrist oftar en ekki á píkuútvarpsstöðvumlandsins landsins og verð ég að viðurkenna að mér finnst þetta vera snilldarlag. Þetta erlagið Smiley Faces held ég að það heiti með dúettnum Gnarls Barkley...sem gerðu einmitt hittaran Crazy.

Hafið það gott snúllos


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.09.2006 19:53:06 / sunna

SJÚBBÍ BÚBBÍ!!!!!!!!!!!

Hei beibs. Kellingin er komin á malbikið og það er ÆÆÆÐÐÐIII!!! Sumarið var reyndar líka æðislegt í alla staði ...hefði mátt vera aðeins betra veður og soleis. En núna þegar ég er loksins komin heim þá nenni ég ekki að hanga í tölvunnni. En svona til að segja eitthvað þá er ég komin með vinnu og verð að vinna sem aðstoðarmaður iðjuþjálfara upp á styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra næsta árið. Heyri í ykkur bráðum Lifið heil

» 6 hafa sagt sína skoðun

18.06.2006 23:43:20 / sunna

Hilsen úr sveitinni

Ætlaði bara að láta vita af mér. Ég er búin að útskrifast og fékk meira að segja verðlaun fyrir besta námsárangur á félagsfræðibraut...haha alltaf gaman að geta montað sig smá. Það var gaman ..sérstaklega þar sem ég bjóst engan vegin við þessu. Núna er ég stödd í Flókalundi og er bara að vinna eins og brjálæðingur, sem er samt bara gaman. Æðislegur staður, fínt fólk og bara gaman að vinna hérna. Er reyndar farin að hlakka til að koma heim og sjá fjölskylduna, Steina og vinina. Það er búið að vera viðbjóðslegt veður hérna. Núna er ég búin að vera hérna í 10 daga eða eitthvað og það eru búnir að vera tveir dagar sem ekki rignir. Ef þetta verður svona í allt sumar þá tjúllast ég. Þegar ég er ekki að vinna er ég bara að spila á gítarinn, horfa á sjónvarpið eða leggja kapal í tölvunni, eða þá að horfa á einhverjar myndir í tölvunni. Það er ekki mikið annað hægt að gera hérna ...og ég nenni ekki út í svona rigningu og roki sko...ekki séns. Annars eru fjórhjól hér og kajakar, maður fer nú bráðum að tékka á þeim. Það er ekki búið að vera mikið fólk hér á hótelinu en það fer vonandi að lagast þegar líður á sumarið. ........Það styttist óðum í Hróaskeldu og þá verður fjör. .....Sjitt ég hef sko ekkert að segja. HHHmmm ...ég kem heim föstudaginn 23. júní . Ég tek Baldur yfir breiðafjörðinn og svo ætlar Steini að sækja mig á Stykkishólm. Hlakka til að sjá alla.......Hilsen. :)

» 7 hafa sagt sína skoðun

27.05.2006 11:37:56 / sunna

Hólí smóks

Jæja stóri dagurinn runninn upp. Sunna litla útskrifast í dag. Jammjamm gaman að því.

Fékk bestu gjöf lífs míns í gær þegar pabbi gaf mér rafmagnsgítar og geggjaðan magnara. Hann hringdi í mig í gærdag og sagðist ætla að koma með hann um fjögur leytið ...og eins tilfinningarík og ég er þá fékk ég alveg tár í augun og fór að skjálfa. Jájá gaman að því. Hann kom svo með hann og ég þorði varla að opna pokann....en ég opnaði hann síðan og vá hvað gripurinn er fallegur...sjæse...Fender telecaster. Djöfulli fallegur gripur. Síðan eru um 50 effectar á magnaranum og hægt að taka parta upp á honum, alls konar trommutaktar, og einhverjar melódíur sem hægt er að leika sér að gera sóló inn í. Ég var síðan bara að leika mér í honum í allt gærkvöld...og vaknaði svo klukkan 0900 og hélt áfram að leika mér. Held ég hafi varla tíma til að útskrifast ...vil ekki fara frá barninu mínu. Namminamm :)

En í gær þá var stúdentsveisla hjá Sigrúnu og það var yndisleg veisla. Ýkt falleg ræða hjá stelpunni og maður fékk bara tár í augun og alles. Rosa flottur matur og fínerí. Til lukku Sigrún og takk fyrir mig :)

En ég ætla að drulla mér í bað....adios amigos!!!!


» 10 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9